Um Fíla
Á döfinni
Fréttir
Útgefið efni
Tenglar
Atvinna

Félagsfundur á Kjarvalsstöðum


5 Febrúar 2012

Fyrsti félagsfundur ársins var haldinn á Kjarvalstöðum þriðjudaginn 31. janúar.  Félagar skoðuðu farandsýningu norsku arkitektastofunnar Snöhetta undir leiðsögn Hugrúnar Þorsteinsdóttir arkitekts.  Sýningin var fyrst sett upp árið 2009 í tilefni af 20 ára afmæli stofunnar og hefur hún farið víða síðan.  Líkön, ljósmyndir, hreyfimyndir  og gagnvirkt snertiborð er notað til að sýna helstu verkefni stofunnar og er óhætt að segja að þar fáist kollegar okkar við  fjölmörg spennandi og óvenjuleg verkefni af öllum stærðargráðum. 

Stofan öðlaðist alþjóðlegan sess þegar hún vann opna samkeppni um Bókasafnið í Alexandaríu og styrkti hana enn frekar þegar hún  vann samkeppnina um  óperuhúsið í Osló.    Snöhetta hefur m.a. verið að hasla sér völl í Austurlöndum fjær og nægir þar að nefna Þekkingar- og menningarmiðstöð Abdulazizar konungs, og Ras Al Kjaimah-borgarhliðið. 

Snöhetta er sérstaklega áhugaverð fyrir okkur landslagsarkitekta þar sem óhætt er að segja að hún hugi vel að tengslum milli landslags og arkitektúr í öllum sínum verkum.  Stofan er með starfsstöðvar bæði í Osló og New York og vinna þar arkitektar, landslagsarkitektar innanhúshönnuðir og iðnhönnuðir sem einnig vinna náið saman með listamönnum og verkfræðingum.

Ágætis mæting var á fundinn (14 manns) og notuðu margir tækifærið til að fá sér hádegismat í kaffiteríunni að sýningu lokinni.

Nánar upplýsingar um Snöhettu


 

 
Engjateig 9, 105 Reykjavík, info.fila@fila.is
Notendanafn: Leyniorð: